Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Núna er ég komin með myndir á síðuna.....þið sem hafið verið að biðja mig um myndirnar af afmælinu þá er þær hér til hliðar...endilega kíkið á þær...svo koma fleiri við tækifæri

Það er alveg ótrúlegt hvað hlutirnir geta verið erfiðir! Ömurlegt að þurfa að taka allar þessar ákvarðanir...Það þýðir náttúrulega ekkert að efast um hvort það sé rétt ákvörðun eða hvort maður átti að gera þetta eða hitt...en svoleiðis er það bara...og hvernig er það...ef maður er ekki viss þýðir það þá að maður eigi að sleppa því eða er maður bara svona ofboðslega ósjálfbjarga...eða hvað!
Alveg ótrúlegt hvað er í gangi í hausnum á mér!
ohhh..þetta er svo pirrandi...ég er að hugsa um eitt og verð að taka ákvörðun en á meðan er önnur hugsun sem er að eyðileggja allt..og það er svo langt frá því að það gæti nokkurn tímann gengið upp að það er ekki einu sinni fyndið...og afherju er maður þá að hugsa um það...ég held að ég ætti að fara til sálfræðings....ehhh ætli hann mundi ekki bara hlaupa út og fara til sálfræðings sjálfur eftir að hann væri búinn að tala við mig!

Ég ætla að gera mitt besta til þess að hrynja í það í græna partýinu um helgina....hefur ekki gengið sem best að reyna að drekka undanfarið en ég held að núna eigi ég það skilið að gleyma mér aðeins og gera smá skandal...það er svo agalega langt síðan síðast.

miðvikudagur, janúar 28, 2004

þá er maður komin heim frá London!
Það var alveg geggjað þar...við löbbuðum svo mikið að ég held að fæturnir séu við það að detta af....og svo er það náttúrulega týpískt að í fréttablaðinu stóð að Britney Spears, Pink og Beoncey(eða hvernig það er nú skrifað) voru á trafalgar square á mánudaginn..og hvar vorum við...ja ekki þar...við vorum bara á oxford street...þetta er náttúrulega ekki sanngjarnt! Ég og Lilja erum snillingar að missa af svona hlutum. En það þýðir svo sem ekki að pirrast yfir því núna! samt fúl! En nú er komið að græna partýinu...Það verðu geggjað! júhú!

fimmtudagur, janúar 22, 2004

Þá er ákvörðun komin í hús!

Ég fer sem sagt ekki til Spánar! ohh jæja, það verður bara að hafa það...ég get þá unnið meira og fengið meiri pening og passað kisuna mína og jafnvel haldið lítið pottapartý...það er náttúrulega bara gaman!

miðvikudagur, janúar 21, 2004

æ...nú er ég komin í smá klípu!

Sko...mér býðst að fara með fjölskyldunni til Spánar í suma...verðum í sumarhúsi og getur legið á ströndinni í hálfan mánuð...hljómar ekki illa...og mig langar geðveikt að fara...en auðvitað kostar þetta pening og ég get ekki sagt að ég eigi mikið af svoleiðis, svo þarf ég líka að fara í skóla næsta vetur sem kostar enn meiri pening og það er ekki sniðugt að reyna að fá meiri námslán að svo stöddu...þannig að hvað á ég eiginlega að gera....ég verð að ákveða mig í dag...síðasta lagi í fyrramálið...þetta er bara ekki sanngjarnt...og svo er það hún Krútta mín sem verður alein heima...og ekki er það hægt í tvær vikur...ohhh...ég er í klípu...get ekki ákveðið mig...ohhh please help!

Oh jæja, ætli ég verði ekki að ákveða þetta sjálf...ég meina ég ætla mér að fara til eyja um versló og ég ætla mér að fara norður að rafta Þannig að það er ekki eins og ég hafi ekki nóg að gera í sumar...ohhh...en mig langar til Spánar...

Jæja lítið gagn í að blaðra um þetta hér...ég efast um að þið eigið eftir að vera hljálpsöm....dem dem dem dem dem dem

ætla að leggjast undir feld...þið megið samt alveg hjálpa mér pínu!

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Smá innskot til you know who!
Ég held maður ætti að reyna að sætta sig við hlutina og sleppa því að hata....því þá líður manni miklu betur. Það er alltaf hægt að reyna bæta hlutina, en þegar maður er búin að gera allt sem maður getur er, held ég, best að sætta sig við þá og reyna að snú sér að öðru ;)

mánudagur, janúar 19, 2004

jæja best að láta alla halda að ég sé nú alveg farin yfir um og koma með fleiri spurningar um sambönd og ástina!
Þegar maður var yngri var bara sagt "Viltu byrja með mér?" Nú er það ekki lengur sagt...þegar fólk er að nálgast þrítugsaldurinn hvernig verður fólk par? Ókey asnaleg spurning...það sem ég meina hvenær getur manneskja sagst eiga kærasta? Þegar fólk er að hittast og deita þá er það ekki saman og ekki kærustupar, heldur bara að kynnast og að deita...en hvenær verður fólk par? Svona lítil spurning til að velta sér upp úr

sunnudagur, janúar 18, 2004

Það er naumast að fólk hefur áhyggjur af manni...halda allir að ég sé í einhverri sálarkreppu eða hvað...maður kemur með eina auðvelda (kannski ekki svo auðvelda) spurningu og allir fara að segja...vertu bara róleg, þetta gerist fyrir þig einhverntímann og þú verður bara að láta það flakka og ekki vera of pikkí og ég veit ekki hvað og hvað...en news flash....ég var ekki að spurja um mig heldur ykkur, ég hef áhuga á því hvernig þið hugsið og hvernig ykkur líður...svona til að vita að hvaða leyti ef ekki öllu leyti við erum öll eins...þannig að ekki hafa áhyggjur af mér...ég er í fínu lagi

laugardagur, janúar 17, 2004

Alveg ótrúlegt veður...ég sem er í Hveragerði og ætlaði að fara aftur í bæinn í dag...við skulum nú sjá til...er nú samt ekki að sjá það gerast neitt á næstunni...það er allt að vera ófært.. það rifjast samt upp margar minningar...nú vantar mig bara aftur vini mína í Hveragerði (allir fluttir) Ég man að alltaf þegar kom mikill snjór og þegar var snjóstormur og allt ófært í Hveragerði þá klæddum við okkur upp og löbbuðum um allt Hveragerði og lékum okkur í snjónum...það var alveg rosalega gaman...nú situr maður bara inni og hryllir við þeirri hugmynd að stíga litlu tá út fyrir þröskuldinn!

fimmtudagur, janúar 15, 2004

Fyrstu sprauturnar búnar!
Loksins er þetta byrjað...en ji minn eini...að þurfa að vera í sprautum í fjögur ár...fyrsta hálfa árið þarf ég að fá tvær sprautur einu sinni í viku og svo næstu fjögur árin er það á sex vikna fresti. Ég er nú frekar aum núna en ég fékk ekkert ofnæmiskast eða neitt svo þetta ætti að vera í lagi.

Það hringdi stelpa í mig í gær frá söngdeildinni og bað mig um að skipta um undirleikstíma við hana, sem þýðir að ég yrði á þriðjudögum í staðinn fyrir mánudögum...sem ennfremur þýðir að ég er í fríi á mánudögum og föstudögum...ohh er það ekki ljúft! En maður þarf þá bara að eyða þessum tíma í lærdóm...ja svona studum....nema ég nái að dobla hana Lilju til að gera eitthvað annað með mér í staðinn hehehe...nei nei...verð að vera dugleg...segir maður þetta ekki á hverju ári? hey...nú er allt að gerast í sjónvarpinu...10 sería af frends eru að fara að byrja og svo er það nýr surviver þáttaröð...All Stars...svo líka smallville og eitthvað fleira...svo er líka skjár tveir að hætta um mánaðarmótin svo að gömlu góðu þættirnir koma aftur á skjá einn..svo sem eins og charmed og fleira....jæja þetta er ekki gott...nú verð ég bara hangandi yfir sjónvarpinu....hehehe!

jæja ég ætla að gera...uhhh....eitthvað annað...

hafið góðan dag!

þriðjudagur, janúar 13, 2004

það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur endalaust pirrað mig...Nú er ég búin að bíða eftir lyfjum fyrir sprautumeðferð síðan fyrir jól og aldrei gerist neitt...ég er búin að þurfa að fresta meðferðinni útaf þessu, fyrst gleymir læknirinn mér (surprise surprise) og svo var lyfjapöntuninni klúðrað, og svo núna er ég bara að bíða og þeir í apótekinu segjast ætla að hringja í mig í dag til að segja mér hvort þetta er komið eða ekki...og ég á að byrja í meðferðinni núna á fimmtudaginn svo ég verð að fara að fá þetta...þetta er svona endalaus pirringur...svona eins og með alla lækna, nú er ég alltaf hjá einhverjum læknum og þeir vita aldrei hvernig þeir eiga að lækna mig og allt sem þeir reyna einhvernvegin misheppnast eða eitthvað og svo gleyma þeir mér alltaf...ég er endaleaust að minna á mig og þeir muna ekki neitt.....ætla að gera þetta og hitt en aldrei gerist neitt! Alveg ótrúlegt!

Svo annað...Mig langar að vita hvort einhver þarna úti hafi einhvern tímann orðið virkilega ástfanginn...og þá meina ég sprengingar og allt heila klappið...og virkilega vitað að þeir séu ástfangnir? Mig langar mikið að vita það...þannig að ef einhver hefur liðið svoleiðis...endilega segið mér frá því...og líka hversu lengi tók það að vera ástfanginn eða var það svona love at first sight?

Endilega segið mér frá því!

sunnudagur, janúar 11, 2004

ohhh nú stend ég alveg á blístri...búin að borða svo góðan mat. Galileó er frábær staður...rosa kósí að sitja uppi! Ég og Lilja vorum sem sagt að vera góðar við okkur og fórum út að borða, svo sátum við þar í yfir einn og hálfan tíma bara á spjalli!

Vá ég er svo södd að ég er að detta út af...bara rosa þreytt og vil bara leggjast niður og leggja mig! maður verður svo rosalega þreyttur af góðum mat!

Segi meira seinna þegar ég er ekki svona södd ;)

föstudagur, janúar 09, 2004

enn einn föstudagurinn genginn í garð! Ég er búin að skúra og bakið mitt ansi þreytt, svo verður manni bara þrælað út alla helgina....kóræfing á föstudagskvöldi og laugardagsmorgni..svoleiðis ætti að vera bannað...en svona er þegar maður segir já við því að taka þátt í óperettu! það verður rosa stuð þegar við fáum að sýna þetta! Svo ætla ég líka að hitta Jónas aðeins þessa helgi...sko strákurinn sem ég fór á deit með! Það verður æði pæði!

Ég get svarið það að ég held að ég hafi aldrei verið eins ánægð með lífið! auðvitað kvarta ég ennþá alveg eins og mér væri borgað fyrir það en lífið lítur samt alls ekki svo illa út núna...nýtt ár sem byrjar mjög vel og ný verkefni sem verða örugglega rosalega skemmtileg...svo er maður líka á leiðinni til London...ég meina hver gæti kvartað yfir því! ég er náttúrulega enn fúl yfir nokkrum tímum í skólanum og er að pæla í því að hætta í Píanó náminu...ekki beint fyrir mig. en skítt með það....eins og einhver sagði þá reddast þetta allt saman...það bara verður að gera það!

Hún Krútta mín (kisan mín) situr hérna hjá mér og malar...skilur ekkert í öllu þessu pikki hjá mér...en hún vill nú samt vera hjá mér...eltir mig á röndum um allt húsið ef ég hreyfi mig eitthvað...það mætti halda að hún væri búin að sakna mín....Hún er algjör rúsína...orðin 14 ára gömul og alltaf jafn hress!

En nú ætla ég að hætta þessu bulli og drífa mig í bankann..ná í debetkortið mitt og heimta meiri pening og eitthvað svoleiðis skemmtilegt.

Bæjó í bili og góða helgi!

fimmtudagur, janúar 08, 2004

Fréttir fréttir fréttir
Já kraftaverkin gerast enn....Heiða litla fór á deit.....og það gékk bara rosalega vel...ég held að brosið nái tvo hringi akkúrat núna. Vitiði að það eru til einhverjir þarna úti sem eru ekki algjörir skíthælar...ég ætla allaveganna að vona það. Er allavega ánægð núna...vona að það haldist!

Góða nótt allir

þriðjudagur, janúar 06, 2004

Já og gleðilegan Þrettándann

jæja..nú er maður alveg búinn að missa vitið...ég held það svei mér þá! Ég og Lilja gerðumst svo bilaðar í gær að við keyptum okkur ferð til London! Ætlum að skella okkur í smá helgarferð núna í janúar! Maður á engan pening en skítt með það...eins og þú sagðir Lilja mín maður lifir bara einu sinni...ég held að maður verði bara hundfúll ef maður vaknar upp áttræður og fattar að maður gerði ekki neitt...var alltaf öruggur gambleraði aldrei neitt...svo er þetta nú bara ein helgi...ég hef aldrei farið til London...held ég hlakki bara voða mikið til....og Lilja mín... við verðum að kíkja á Notting Hill!

mánudagur, janúar 05, 2004

Það er allt að verða vitlaust...20.000 manns að berjast um 1000 fría miða til London eða Köben frá iceland express...vefurinn krassaði hjá þeim...svo er verið að segja manni að vera þolinmóður...ég meina..þeir sem eru þolinmóðir fá ekki miða og hinir eru taldir vera algjörar frekjur...alveg ótrúlegt!

föstudagur, janúar 02, 2004

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

2004.....

Jólin voru voða fín hjá mér...var bara í leti hjá mömmu og pabba...góður matur og mikið slappað af...bara eitt jólaboð þannig að það var eytt miklum tíma í að liggja undir teppi og horfa á sjónvarp...voða fínt! Ég fór á þrjú böll...annan í jólum í Hvíta húsinu á Selfossi...STUÐMENN, þar tjúttuðum vil Lilja voð mikið og skemmtum okkur yfir fullum sunnlendingum...og mörg voru skemmtiatriðin ;), svo var það Sölva kvöld í Hveragerði..þar voru flest allir Hvergerðingar komnir saman...og viti menn, það var bara rosalega gaman...þótt að það komu uppákomur...hvað er þetta með stráka sem halda að maður hoppi í rúmið með þeim bara útaf því að þeir segja satt!....Það er æðislegt þegar strákur er hreinskilinn en þegar þeir segja..." ég er algjör skíthæll og verð algjör skíthæll...og ég á ekki eftir að hringja í þig á morgun en ég get verið rosalega góður við þig núna" Þá segi ég einfalldlega go away en ekki ok flott hoppum upp í rúm....ég meina það...sumir eru alveg ótrúlega vitlausir...en jæja...hvað veit ég..kannski fellur einhver fyrir þessu!
Svo var það áramótaballið...þótt að hljómsveitin væri ekki upp á marga fiska þá var bara helv... gaman...það var spilað alveg til hálf sex held ég. Gulli og Svava mættu og Gulli meira segja dansaði fullt án þess að vera dauða drukkinn....það kalla ég nú gott!

En það gerðist svo sem ýmislegt meira sem ég ætla bara að halda fyrir sjálfa mig og mína bestu vini..Lilja mín ég þarf að segja þér fullt!

En skál fyrir nýju ári og megi allar okkar óskir rætast

Salut!