Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, febrúar 21, 2005

Enn ein helgin liðin og ný vika byrjuð...alltaf það sama...ég fór til Hveragerðis um helgina og skellti mér á hestbak...verð nú að segja að ég var frekar hrædd....alveg ótrúlegt hvað það tekur mikinn tíma að byggja upp kjark aftur, ég og pabbi ætlum nú samt að fara á hestanámskeið fljótlega. svo fer að líða að því að bróðir minn fermist, það verður hörku fjör og svo er hinn bróðir minn á leið til Ameríku....asnalegt...aldrei fæ ég að fara með :) ég fór með familíunni á Grillhúsið í gær og svo skelltum við okkur á Ray í bíó...bara hörku góð mynd verð ég að segja, annars er ekki mikið að frétta af mér...ég hangi bara heima mest megnis, læri og er svo í skólanum....ekki mikið líf það...ohh well!

Mig langar alltaf að segja eitthvað rosa merkilegt hérna inni en ég veit samt eiginlega aldrei hvað ég á að segja...alltaf alveg tóm...kannski næst!

bæjó og ekki gleyma að horfa á Surviver í kvöld....ný sería...jeii

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Helgin er að líða undir lok....þetta er nú bara búið að vera ágætis helgi....laugardagurinn byrjaði á prófi sem ég held að hafi gengið svona ágætlega, svo fór ég og Kata á Carúsó og fengum okkur góðan mat...en ég læri aldrei að maður á ekki að fá sér spaghetti þegar maður er að fara að djamma...alltof messý! en allavega, við kíktum á þorrablót í skólanum, það var nú ekki góð mæting en ég fékk Kötu til að drekka brennivín og éta hákarl, þó svo að ég gerði alls ekki hið sama! Svo voru allir mínir draumar eyðilagðir þar sem að ég komst að því að herra fullkominn er HOMMI það er nú bara týpískt....en við færðum okkur bara á Nasa þar sem við gátum slefað yfir Jónsa og hinum strákunum í svörtum fötum....dönsuðum mikið og Kata fékk mig til að slamma tekíla....ojjbara...skil ekki hvernig hún fór að því...ohh well..kvöldið endaði svo með Jónsa berum að ofan og svo var rölt heim um fimm leytið.... hélt að það væri góð hugmynd en það var bara svo rosalega kalt að ég náði varla hita í mig aftur alla nóttina...

En ég get sagt að þetta var bara rosa skemmtilegt djamm fyrir utan að allir mínir draumar um fullkominn eiginmann hvarf að eilífu!

En annars hafið það gott...ég ætla að fara að horfa á vídeó og reyna að finna eitthvað ætt að borða....

laugardagur, febrúar 05, 2005

Ég verð bara að segja eins og er að ég er bara í engu stuði til að segja nokkurn skapaðan hlut hérna inni............

Foreldrarnir eru búnir að kaupa nýtt hesthús...voða fínt, ég er að fara í próf í næstu viku...sem er ekki fínt

æi......við sjáumst

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Helgin alveg að skella á! Ætli ég kíki ekki aðeins í Hveró um helgina...ætla að kíkja á nýja hesthúsið....jamm, foreldrarnir búnir að kaupa nýtt hesthús...voða flott og með kaffistofu og allt, bættu líka einum hesti við...svona einn gamall og góður fyrir byrjendur...eða mig og pabba....fór á hestbak um síðustu helgi og þetta var í fyrsta skiptið eftir að ég fékk byltuna...þannig að ég var eins og hengd upp á þráð...rosa hrædd...ég þarf að fara að æfa mig ;)

Það er ítalskur kennari að koma í skólann í næstu viku...við fáum bæði hóptíma og einkatíma hjá henni, tökum aðalega fyrir ítalsar óperu aríur...það verður hörku stuð...þetta gerist samt á röngum tíma, næsta vika er nefninlega próf vika og þetta dæmi tekur næstum alla vikuna.....enginn tími til að læra...en welll...sjáum til hvernig þetta fer.

en ekki meira í bili...ætla að fara að..........well gera eitthvað, veit ekki alveg hvað....kemur í ljós!

Lilja mín....farðu nú að koma heim...ég er alveg að farast hérna án þín....surviver fer að byrja aftur...ohhh I miss ya

en allavega

seeyaa later