Helgin er að líða undir lok....þetta er nú bara búið að vera ágætis helgi....laugardagurinn byrjaði á prófi sem ég held að hafi gengið svona ágætlega, svo fór ég og Kata á Carúsó og fengum okkur góðan mat...en ég læri aldrei að maður á ekki að fá sér spaghetti þegar maður er að fara að djamma...alltof messý! en allavega, við kíktum á þorrablót í skólanum, það var nú ekki góð mæting en ég fékk Kötu til að drekka brennivín og éta hákarl, þó svo að ég gerði alls ekki hið sama! Svo voru allir mínir draumar eyðilagðir þar sem að ég komst að því að herra fullkominn er HOMMI það er nú bara týpískt....en við færðum okkur bara á Nasa þar sem við gátum slefað yfir Jónsa og hinum strákunum í svörtum fötum....dönsuðum mikið og Kata fékk mig til að slamma tekíla....ojjbara...skil ekki hvernig hún fór að því...ohh well..kvöldið endaði svo með Jónsa berum að ofan og svo var rölt heim um fimm leytið.... hélt að það væri góð hugmynd en það var bara svo rosalega kalt að ég náði varla hita í mig aftur alla nóttina...
En ég get sagt að þetta var bara rosa skemmtilegt djamm fyrir utan að allir mínir draumar um fullkominn eiginmann hvarf að eilífu!
En annars hafið það gott...ég ætla að fara að horfa á vídeó og reyna að finna eitthvað ætt að borða....



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home