Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, október 23, 2006

Halló allir saman

Helgin var bara voða fín...fyrir utan smá magakveisu á föstudaginn, held að það hafi verið mataræðið, borðaði ekkert allan dagin nema pizzu...held að maginn hafi ekki alveg verið að samþykkja það. En það lagaðist fljótt. Fór svo í útskriftarpartý til Lilju á laugardaginn....fullt af fólki sem ég þekki ekki og allir miklu yngri...but hey, þetta var svaka stuð, takk fyrir mig lilja mín :) Sunnudagurinn var fínn, skellti mér á mýrina í bíó klukkan þrjú....ekkert nema gamlingjar í bíó klukkan þrjú, snilldar mynd verð ég að segja, Ingvar er auðvitað snillingur...svo væri ágætt að sjá Ágústu Evu í fleiri svona hlutverkum í staðinn fyrir Silvíu nætur dæmið.
Fór svo um kvöldið á Kaffi Krús með Gulla, Ingu, Gumma, Siggu og Jóni....þannig að helgin var bara helv*** fín ;)

Jæja,ég ætla að fara í tíma núna...eða eftir smá stund

Later!!!!

laugardagur, október 21, 2006

Stal þessu frá henni Sól vinkonu minni. Fannst þetta helv.... skemmtilegt :)

1. Rúsínan í pylsuendanum - The raisin at the end of the hot-dog

2.Ég mæli eindregið með því - I measure one-pulled with i

3.Nú duga engin vettlingatök - Now there won't do any mitten-takes

4.Ég kem alveg af fjöllum - I come completely from mountains

5.Þakka þér fyrir hlý orð minn garð - Thank you for the warm words into my garden

6. Það gengur allt á afturfótunum - Everything goes on the back-legs

7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.

8.Það liggur á augum uppi - It lies in the eyes upstair

9.Hún gaf mér undir fótinn - She gave me under the leg

10. Hann stóð á öndinni - He stood on the duck

11.Ég kenni í brjósti um hann - I teach in breast of him

12.Áfram með smjörið - On with the butter!!!

13. í grænum hvelli - In a green bang

14.Ég vorkenni honum - I springteach him

15. Forsætisráðherra - Front seat advise Si

16. Stappa stálinu á þá - Stomp steel into them

17.Hver á þessa bók? - Hot spring river this book

18.Enginn verður óbarinn biskup - Nobody becomes an unbeaten bishop

19. Ég tók hann í bakaríð - I took him to the bakery

20.Ég mun finna þig í fjöru - I will find you on a beach

21.Að koma einhverjum fyrir kattarnef - To put someone before a cats nose

22. Ég borga bara með reiðufé - I only pay with an angry sheep

23.Ég skal sýna honum hvar Davíð keypti ölið - I'll show him where David bought the ale

24.Sel það ekki dýrara en ég keypti það - I will not sell it more expensive than I bought it

25. hann gengur ekki heill til skógar - He doesn't walk whole to the forrest

26.fjallmyndarlegur - Mountain handsome

þriðjudagur, október 10, 2006

Loksins myndir

Hvurslags eiginlega, mín bara dugleg, ég setti inn alveg þónokkuð af nýjum myndum. En rosalega getur þetta verið leiðinlegt, það tekur svo langan tíma að setja inn myndir og svo þegar ég var að skoða diskana mína, sem ég setti allar myndirnar mínar á, þá var einn diskurinn bara tómur og helmingurinn að öðrum disk kom ekki inn, ég er ekki svo þolinmóð að geta staðið í svona, ég get svarið það....langaði að öskra! En náði samt að setja inn nokkrar myndir, þarf bara að eyða meiri tíma í að laga þetta á diskunum mínum.

Annars er allt gott að frétta, ég átti alveg fínasta afmælisdag, góðir vinir og góður matur...getur ekki verið betra ;)

Ég ætla að láta þetta nægja í dag,

Kveðja Heiða

föstudagur, október 06, 2006

Það er kominn föstudagur...loksins

Ég er búin að vera í einu stress kasti þessa vikuna, er á námskeiði sem heitir listin að kenna tónmenntir...búið að vera rosa gaman, en við höfum þurft að kenna litlum krökkum líka ásamt því að horfa á kennslu...maður hefur svo sem ekkert nema gott af því, í dag er síðasti dagurinn í námskeiðinu og verður bara rólegur.

Á morgun er laugardagur og þá verð ég stór...well, ég er kannski ekkert rosa stór og á líklega ekkert eftir að stækka, en ég verð allavega árinu eldri...tíminn líður alveg á ógnarhraða....stundum finnst mér eins og maður sé búinn að svífa í gegnum árin án þess að taka eftir þeim...allavega síðustu ár! En á morgun verður farið út að borða með góðu fólki, verður fámennt en auðvitað góðmennt...það verður æðislegt, hlakka rosa mikið til.

Er að fara í sund núna og svo er það skólinn......svo bara aflslöppun...er í fríi á morgun, fyrsta laugardagsfríið mitt í einn og hálfan mánuð að ég held :)

Svo er ég loksins búin að setja allar myndirnar mínar á disk, á nú samt eftir að fara yfir þær og ákveða hvað ég ætla að framkalla og svo set ég kannski nokkrar nýjar myndir hér inn ;)

Hafið góðan dag og endilega farið í sund....það er allra meina bót :)