Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, desember 20, 2006

Jólin að koma

Jæja, lagið vann ekki í jólalagakeppninni...en það var samt flottast!

Ég var svo hrikalega óheppinn að fá svona "home alone" dett....það er að segja, ég var í stiga, hélt á rosa stórri kongótrommu og svo rann ég til og fæturnir fóru upp í loft og bakið beint á stigann, það þurfti að hringja á sjúkrabíl og alles, ég sem betur fer er bara tognuð á bakinu og nú er ég farin að geta hreyft mig aðeins og meira að segja sofið á nóttinni. Ég ætti að vera orðin góð fyrir jól....sem betur fer!

Annars er ég bara að vinna eins og brjálæðingur, reyni svona inn á milli að kaupa jólagjafir, skrifa jólakort og pakka inn gjöfum....fór nú í smáralind í gærkvöldi og ætlaði svo að kaupa mér jólaföt, mér tókst ekki að kaupa eina einustu spjör....jólakötturinn verður glaður í ár! Jæja, þá verður maður bara að vera í gömlu lörfunum um jólin!

Ég ætla að fara að vinna núna
njótið jóla veðursins (hóst hóst)

adios í bili

3 Comments:

  • At 10:22 e.h., Blogger Halldís said…

    verðuru eitthvað í bænum fyrir jól? eigum við ekki að hittast? jafnvel plata dóru með? þeas ef óveðrinu slotar!!!

     
  • At 9:36 f.h., Blogger Heiða said…

    Ég er að vinna alveg fullt, verð ekki mikið í bænum....en ég vil endilega hittast!

     
  • At 10:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er nú gott að þú er BARA tognuð...það er nú bara mikið meira en nóg Heiða mín. Hlakka til að sjá þig, þó það væri ekki nema bara á Sölvakvöldi ;o)

     

Skrifa ummæli

<< Home