Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, september 18, 2003

Þá er maður kominn til Hveragerðis (home sweet home) Mér fannst ég vera komin í teiknimynd á leiðinni hingað...næstum heiðskírt og bjart, fjöllin svo hrein...þetta var eins og að horfa á málverk...á svoleiðis stundum finnst mér svo óraunverulegt að vera á lífi...að lifa, ganga um og anda...hafið þið einhverntíman hugsað um sálina..sumir trúa ekki á sálina...en hvernig værum við ef við hefðum ekki sálina...værum við þá ekki bara eins og vélmenni...við höfum svo margar tilfinningar og mest allan tíman vitum við ekki einu sinni hvað við erum að hugsa, hvað við viljum eða hvernig í ósköpunum við eigum að taka til í hausnum á okkur. Þá fer ég að hugsa...það hlýtur að vera eitthvað til sem er yfirnáttúrulegt...annars værum við varla eins og við erum...það er bara spurning um hvað það er. Svo hugsar maður líka hvað gerist fyrir sálina þegar líkaminn deyr...deyr sálin líka eða er það eins og búddistarnir segja : sálin er eins og kaffi...hún er í bolla og ef bollinn dettur og brotnar þá er bollinn ekki lengur bolli heldur mörg brot en þótt kaffið slettist á vegginn eða á gólfið þá er kaffið samt ennþá kaffi...og þegar við þurkum kaffið upp með tusku þá er kaffið ennþá kaffi í tuskunni...sem sagt kaffið verður alltaf kaffi þótt það sé ekki lengur í bollanum. Ég veit ekki...maður getur svo sem hugsað um þetta endalaust...maður fær aldrei nein svör...maður verður bara að ákveða sig hvað maður trúir á og vona það besta. Er það ekki bara? En nóg af þessu..ég er að fara að borða grillaðan kjúkling á bjórdós...jamm...á bjórdós. Bjórdós sem er hálf full (af bjór) er troðið inn í kjúklinginn og svo er kjúklingnum og bjórdósinni skellt á grillið...hverjum datt það í hug...en snilld all the same! well bon appétit

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home