Rosa góð helgi búin!
Græna partýið gekk bara vel...þó að það hefði mátt halda að það hefðu verið tvö partýi í þessu litla plássi! En ég skemmti mér alveg rosa vel og nú þarf ég bara að framkalla filmuna mína, skanna inn myndirnar og setja þær á netið...en þið verðið samt að bíð þangað til um helgina!
Ég var only the lonely á sunnudaginn...en fann loks vini þegar ég leitaði til fjölskyldunnar...fór í súpu til frænfólks og dró svo Eddu mágkonu með mér í bíó...hún náttúrulega gat ekki hætt að hafa áhyggjur af barninu sínu...en er það svo sem ekki eðlilegt!
Svo hlakka ég rosa til að komast heim til Hveragerðis...og skoða hestana...! Já fjölskyldan mín er búin að hella sér í hestamennsku, Fengu stað í hesthúsi fyrir tvo hesta og fengu svo lánaða hestana..þannig að núna er ég bara að fara á hestbak um hverja helgi...og ég verð að segja að mig hlakkar rosa til...hef alltaf verið hrifin af hestum og finnst æðislegt á hestbaki...þó að ég var nú bara um 14 ára þegar ég fór síðast á bak.
Ætli ég verði ekki að hella mér í lærdóm núna! Á eftir að læra ógeðslega mikið...en svo er það SURVIVER ALLSTAR í kvöld.....Go Rubert og Ethan...jei jei jei!



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home