Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, mars 03, 2004

jæja, þá er kominn miðvikudagur...það er frí í hljómfræði hjá mér svo ég fer ekkert í skólann fyrr en klukkan fimm...frekar seint, en jæja svona er þetta....verð svo í skólanum til átta í kvöld...svaka stuð! En allt gott er að frétta af mér..ég er að jafna mig á harðsperrunum, þó svo að ég sé svolítið aum ennþá. Það er verið að selja íbúðina sem ég bý í núna svo ég þarf að þola það að það er alltaf eitthvað fólk hérna að skoða...hundfúllt.

frænka mín var að eignast barn í fyrradag...enn eitt barnið sem fæðist í útlöndum, nú á ég 5 lítil frændsystkini í útlöndum sem ég fæ aldrei að sjá...svona fólk á að vera á íslandi ekki einhverstaðar í úglöndum...asnalegt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home