Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, maí 26, 2004

Enn einn vinnudagurinn búinn...alveg ótrúlegt að maður eyði lífinu í það að vinna...sumir vinna það mikið að þeir fá aldrei að njóta þess að lifa...hvað gerist þá...jújú...sá hinn sami á fullt af peningum en því miður er hann dauður og getur ekkert gert við þá! Ég meina...maður er í skóla og þegar honum lýkur þá tekur vinnan við....er þetta virkilega það sem við eigum að gera við lífið...Það er svo sem voða gott fyrir sálina að vinna...en maður verður að taka frí og leyfa sér að gera það sem maður vill gera....eins og að ferðast um heiminn eða hvað annað sem maður vill gera....just do it....segi ég bara....það er bara synd að lífið snúist eiginlega bara um peninga.

Ég pantaði tíma í nudd hérna í Hveragerði og vitiði hvað...ég þarf að bíða í heila viku eftir tíma...djí..ég þarf þá að vera hálf skökk í viku í viðbót!

Maður er strax farinn að hlakka til Versló....EYJAR here I come...alveg ótrúlegt hvað maður getur ekki fengið nóg....ef maður fer einu sinn fer maður alltaf sagði einn vitur maður einu sinni....það var sko orð að sönnu...ég held að ég sé búin að fara fimm sinnum og get ekki hætt..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home