Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, september 08, 2004

Jæja, þá er ég byrjuð í skólanum...allt á fullu...get nú ekki sagt að það sé gaman að keyra alltaf á milli en það virkar ágætlega....næstu viku fæ ég þó að vera í bænum, frænka mín er að fara til útlanda í rúmlega viku og var svo góð að bjóða mér íbúðina á meðan...en samt þarf ég að vera að keyra til Hveragerðis á mánudegi og miðvikudegi, það er svona þegar maður er að skúra á Hveró!
Fyrsta húllumhæið í skólanum verður svo næsta föstudag...það á að kjósa í nefndir og eitthvað party á eftir held ég! ætli maður kíki ekki á það. Það er nú samt svo óþægilegt að mæta svona einn og ekki þekkja neinn annan. Ég er nú ekki þekkt fyrir það að vera fljót að eignast vini svo mér kvíður pínu fyrir. Ég er í fríi í dag...svo það verður bara lært og lært og lært! djí...ekkert gaman...skólinn er nýbyrjaður og ég er að fara í próf í næstu viku...það ætti að banna svoleiðis.

2 Comments:

  • At 10:37 f.h., Blogger KSvava said…

    Heiða mín, ég hef nú alveg meiri en næga trú á þér að þú eigir eftir að spjara þig og eignast fullt af góðum vinum, hver myndi ekki vilja þekkja svona hæfileikaríka og skemmtilega stúlku ha? Segðu mér það! Skemmtu þér vel og gangi þér sem allra best í skólanum :O)

     
  • At 5:48 e.h., Blogger liljaarn said…

    Ok ef ad mer tekst ad kynnast folki, tha hlytur thu nu ad eiga sens!! Vona ad thu skemmtir ther vel i partyinu :) og brefid er a leidinni-skilst nu reyndar ad postthjonustan i Kanada se ekkert til ad hropa hurra yfir en vonandi kemur brefid fyrir jolin...hehehe! sakna thin mestast!

     

Skrifa ummæli

<< Home