Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, október 30, 2003

Getur eitthvað sem gerðist fyrir mann fyrir mörgum árum virkilega haft svo mikil áhrif á þig að það fylgir þér alla ævi....ég meina ef eitthvað slæmt gerist...eyðileggur það þá allt sem þú ætlar þér að gera sem er eitthvað í líkingu við það sem gerðist. Og hvað með sálfræðinga...hjálpa þeir virkilega eitthvað...verður maður ekki bara að hjálpa sér sjálfur...ég meina hlusta sálfræðingar ekki bara...segja þeir eitthvað...getur maður ekki alveg fundið sér góðan vin til að hlusta á allt þvaðrið í manni...eða hvað? En hvernig veit maður annars hvað er að bjaga mann...ég meina...ef mér líður illa þá veit ég aldrei afhverju...ég bý til fullt af ástæðum en hver er rétt...hausinn á mér er allavega ekki svo orginiseraður að hann viti hvað er að...svona á langtíma litið....æi...ég er ekki viss um að það sé neinn sem viti í raun hvað ég er að tala um...svona blaður fram og til baka...ef þið fattið hvað ég er að tala um endilega gefið mér einhver comment, adios amigos....og nefertiri hittir ykkur á morgun ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home