Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, október 14, 2003

jæja jæja jæja
Þá er djamm aldarinnar búið og annað kemur strax á eftir (eða næstum því)
Partýið gekk bara vel...allir voru hrifnir af matnum og það gekk bara ágætlega að þrífa eftir allt þetta fólk. Þá er bara komið að nýrri viku...ji minn...maður nennir nú varla að fara í skólann....en afhverju er maður að þessu öllu saman ef maður nennir ekki í skóla og svo þegar maður fer á vinnumarkaðinn þá nennir maður aldrei að mæta í vinnuna á mánudegi! æi ég veit ekki...bara svona af því bara! því það er það sem maður á að gera!
Jæja á maður ekki að vera í góðu skapi og svoleiðis, hætta að kvarta alltaf svona mikið! Lífið er nú ekkert svo slæmt...ja allaveganna þegar maður lætur það ekki fara í taugarnar á sér...ég held að þetta sé allt í hausnum á manni...Lífið er gott ef þú trúir því...svo getur lífið líka verið hræðilegt ef þú bara trúir því...þannig áð það er maður sjálfur sem ræður hvernig lífið er!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home