Það er sunnudagsmorgun og ógeðslegt veður! Mikið rok og rigning!
í svona veðri á maður að vera undir sæng með vídeó og nammi. En ætli ég verði ekki að fara að læra...þýðir ekki að vera með leti endalaust. tvö próf í vikunni og svoleiðis...hef nú samt ekkert voða áhyggjur af þeim.
Ég er eitthvað svo tóm núna...reyni að finna eitthvað sniðugt til að segja en ég er bara ekkert sniðug núna. Segið mér eitt...eru þið viss hvað þið viljið gera í lífinu...eruð þið viss að það sem þið eruð að læra er það sem þið viljið gera. ég veit ekki...stundum held ég að ég sé að gera einhverja vitleysu...en þá fer ég að hugsa hvað annað kæmi til greina...og ekkert kemur...er það ekki svolítið sorglegt þegar maður hefur ekki einu sinni Plan B. Ég veit um eina sem var búin að læra hárgreiðslu en fékk svo ofnæmi fyrir því og þá hafði hún ekkert...enga aðra menntun...er svo núna búin að koma sér vel fyrir með góða vinnu en hefur alltaf aðra drauma sem hún fær ekki að uppfylla..það fynnst mér sorglegt. Svona getur lífið tekið stjórnina...þó að stundum vildi ég að lífið mundi taka stjórn á mér því þá hefði ég allaveg einhverja hugmynd um hvað ég er að gera....æ...well...segi bara Góðan sunnudag og látið ykkur líða vel undir sæng ;)



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home