Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, desember 23, 2003

þá er komin þorláksmessa...júhú! Lilja til hamingju með daginn dúllan mín! allt er orðið fínt hér og ég tilbúin í jólin...en aftur á móti verður skötuveisla hérna í kvöld...ojjjj! en ég ætla bara að forða mér og borða kökur hjá Lilju...thank u Lilja mín að bjarga mér frá þessum ósköpum! Já lífið er bara alveg ágætt núna...tónleikarnir í dómkirkjunni gengu bara rosa vel og allar einkunnir voru yfir átta svo ég er bara sátt! Svo nú er ekkert eftir en að njóta jólanna...ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til... Það ertu tvö böll á dagskránni yfir jólin og áramótin...annan í jólum er það Stuðmenn í Hvíta húsinu á Selfossi og svo er það Snúlla bar um áramótin...þótt að ég viti ekki enn hvaða hljómsveit verður að spila þar...vona allavega að það verði hljómsveit sem spilar þar! Það er alltaf svo gaman að fara á böll hérna á suðurlandinu....nýt þess allavega miklu betur en að fara á djammið í Reykjavík. En núna ætla ég að drífa mig í kökur svo ég segi bara

HÓ HÓ HÓ GLEEEÐILEG JÓL

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home