Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, desember 01, 2003

Jæja þá er kominn desember og jólin nálgast...ohhh...það er svo gaman á jólunum...mig langar alltaf að fara aftur í barndóm á jólunum...en ég verð bara að segja ykkur að mig dreymdi svo yndislegan draum í nótt...ohhh rómantíkin blómstraði alveg og ég fékk nóg að kyssa og knúsa! langaði ekkert að vakna....en sá sem ég var að dreyma um hef ég alltaf kallað einn af mínum bestu vinum...svo humm...veit ekki alveg hvort það sé gott eða vont! Nóttina áður dreymdi mig David Bowie...sem ég verð að viðurkenna var bara alls ekki slæmt ;) En þessi draumur var nær heima...svo ég veit ekki alveg hvernig ég á að vera...En það var allaveganna rosa næs og ég er alveg að koma mér í jólaskapið...brosi bara og raula jólalög...get ekki beðið eftir að komast í jólasteikina hjá mömmu! Love ya all og brosið í allan dag ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home