Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, febrúar 12, 2004

Ég vaknaði snemma í morgun og fór í sprautur...fékk ekki að fara síðast útaf kvefi og ég er enn hóstandi, með eytlabólgu og eitthvað...en ég fór samt...hélt hóstanum niðri og sagðist vera í lagi..ég meina ég er nú alveg að verða betri...vantar bara herslumuninn! Get nú samt ekkert sungið ennþá...verð að bíða fram yfir helgi...andsk. kvef...en allt tekur þetta enda!

Jæja þá er það Jónsi kallinn sem fer fyrir Íslandshönd til Istanbúl í maí...gæti svo sem verið verra...hann getur sungið, er flottur....mjög flottur...sérstaklega handleggirnir slurp..og svo er hann mjög skemmtilegur á sviði....ég segi bara gangi honum vel...er samt orðin forvitin með lagið...við fáum ekkert að vita fyrr en 1 mars...hundfúlt! En ég setti hér við hlið nokkra eurovisionhlekki ef það eru einhverjir þarna sem eru eins spenntir og ég ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home