Lífið er!

Eða hvað!!!!

sunnudagur, mars 07, 2004

Jæja þá er kominn sunnudagur...helgin að klárast og það er brjálað veður úti!

Árshátíðn gékk bara vel...rosa fjör og outfittið gékk bara mjög vel upp. Ég er í Hveragerði núna og er að rembast við að skrifa umsókn í Listaháskóla Íslands...ótrúlegt hvað svona hlutir þurfa vera flóknir. Á að skila þessu á morgun, vonandi gengur það upp!

Hefur ykkur stundum liðið eins og þið séuð ein í heiminum...það er ekki góð tilfinning...maður veit ekki hvort maður á að vera hér eða fara þangað eða bara sitja út í bíl og glápa út í loftið...það skiptir varla máli hvað þú gerir því hvar sem þú ert þá ertu ein...reynir að tala við fólk og fattar að það er í raun engin þarna til að tala við

Það er kannski ástæðan fyrir því að fólk eyðir lífinu í það að leita að einhverjum til að eyða ævinni með, því þótt þú eigir vini...mjög góða vini, þá eiga þessir vinir sér líf sem sem þú ert ekki með í, og þegar þeir ertu að sinna sínu lífi þá ert þú ein og hefur engan...en þegar þú átt einhvern til að eyða lífinu með þá er allt hans líf þitt líf og þú ert aldrei ein og hefur alltaf enhvern sem er til staðar og þessi "Palli var einn í heiminum" sindrom hverfa.............................Vonandi............

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home