Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Jæja...þá eru páskarnir búnir og skólinn heldur áfram...ég hafði það bara ágætt um páskana, fór til Eskifjarðar í fermingu...þvílk keyrsla...níu tímar hvora leið..og svo var farið í sumarbústaðinn á páskadag...borðaði allt of mikið af súkkulaði...var komin með craving í ristað brauð með salami...hehehe...en nú verður alveg brjálað að gera hjá mér! Það verða tónleikar í skólanum næsta laugardag svo á ég að syngja í norræna húsinu á mánudag, svo er það stigsprófið í næstu viku og frumsýningin á sígaunabaróninum, á sama degi...svo það er nóg að gera hjá mér þessa dagana....

já og by the way þá komst ég inn í Listaháskólann...sem ég persónulega skil ekki...þar sem þetta ljóta fólk var búið að segja að þeim leist ekkert á mig....og ég var búin að sætta mig við að fara ekki...meira segja veit ekki alveg núna hvort ég vilji fara í þennan skóla....svo þarf ég að svara þeim fyrir laugardaginn, svo ég verð að fara að ákveða mig. Æ maður, ég veit ekkert hvað ég á að gera!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home