Þá er búið að setja niður röðina í Eurovision....Íslendingar verða 17. í röðinni (af 24) þannig að ég held að það sé bara fínt...vera svona í seinni hlutanum...Norska lagið í fyrra var rólegt og lenti í fjórða sæti og það var 18. í röðinni....boðar vonandi gott.
Hvernig finnst ykkur annars íslenska lagið?
Það er allt brjálað hjá mér núna....Það eru byrjaðar æfingar í íslensku óperunni á sígaunabaróninum...þannig að öll kvöld fara í það að vera á æfingum...næsta helgi verður alveg klikkuð...þarf að vera á æfingu á laugardeginum en þarf samt líka að fara í inntökupróf í LHÍ svo á sunnudeginum fer ég í stöðupróf sem verður allan daginn...þarf líka að fara í eitthvað viðtal hjá þessu fólki....alveg ótrúlegt hvað þetta þarf að vera flókið. Nú svo er það bara næsta vika, sem verður klikkuð líka og svo er ég komin í páskafrí....jei....það verður gott að slappa aðeins af...ætla í fermingu á Eskifjörð og vera svo kannski bara í afslöppun uppí bústað.



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home