Miðvikudagur og það er FRÍ...það er að segja...engin sígaunabaróns æfing...en aftur á móti þarf ég að vera í skólanum alveg til hálf sjö í kvöld!
á morgun fimmtudag er generalprufan...og nota bene ykkur er velkomið að mæta á hana ( klukkan 14.00 í íslensku óperunni), ætlum að reyna að fá stöð tvö og rúv til að mæta og fjalla aðeins um okkur!
Var að syngja á tónleikum í norræna húsinu á manudaginn og það gékk bara alveg rosalega vel...en svo fékk ég náttúrulega í hálsinn daginn eftir þannig að ég er á fullu að ÞEGJA OG EKKERT SEGJA til að röddin lagist nú fyrir föstudag...annars er ég í djúpum skít!
Var að pæla í því að skreppa á timeline í kvöld...alltaf gaman að vera boðin í bíó svona öðru hvoru....
Have a nice day.



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home