ohhh...ég er með hausverk...þoli ekki hausverk...sérstaklega þegar maður sofnar með hausverk og hann dirfist að vera enn þegar maður vaknar...
Jæja þá eru foreldrarnir farnir til Spánar...Litla ég skilin eftir...ohh well...þá fæ ég bara að njóta þess að sjá um mig sjálf..Það er alltaf gott.
Ég get loksins séð skjá einn...þarf samt alltaf að taka afruglarann úr sambandi til að horfa og fæ myndina ekki alveg skýra...en það er nú betra en ekki neitt...get þá horft á Charmed...jei...Lilja mín, þú sleppur við að taka upp fyrir mig!
Nóg að gera framundan...er að fara að syngja í brúðkaupi núna um næstu helgi í Keflavík, veit nú ekki hver er að fara að gifta sig...en það er allt í lagi! Svo á ég að syngja í brúðkaupi í Júlí hjá vinkonu minni og fer svo sem gestur í þriðja brúðkaupið líka í júlí...ég meina það...allir í giftingarhug núna!
Mamma er alltaf að reyna að koma mér út...segir mér hvers konar gæja ég á að ná mér í... eins og það sé rosa auðvelt...."einn svona takk" "og pakka honum inn" hehehe væri það ekki þægilegt.
Ég ætla að vinna aðeins...þess vegna er maður nú hér(í vinnunni sko). Reyna að gleyma þessum ljóta hausverk...ef það er nú hægt!



1 Comments:
At 12:16 e.h.,
KSvava said…
Æji ekki nógu gott með hausinn þinn, vonandi lagast það. Til hamingju með skjá einn, alveg ómöglegt að missa af Charmed! :)
Skrifa ummæli
<< Home