Ég er búin að vera að læra eins og vitlaus væri síðustu daga...er í prófum núna og fer í erfiðasta prófið á morgun...Tónlistarsaga...ohhh er að verða geðveik, verð voð fegin þegar þetta er búið...en þá tekur auðvitað bara meira við.
Svo er það Ísafjarðar ferðin mikla..Það verður lagt af stað með rútu klukkan sjö á mánudagsmorgun....alltof snemmt...og ég með mína bílveiki...þetta verður interesting. Svo komum við heim á föstudaginn, verðum alveg í heila viku þarna, djísús. Það verður full dagskrá allan tímann...við eigum að tónsetja Ísafjörð...hvernig sem maður fer að því! Það eina sem við þurfum að borga er maturinn og hann verður keyptur í sameiningú á ísafirði. Ohh...ég fæ þá ekki að fara út að borða á fimmtudaginn...en ohh well...maður getur víst ekki fengið allt sem maður vill. Jæja, ætli ég fari ekki að steikja á mér heilann aðeins meira...algjört svindl að maður lærir og lærir og svo nær maður kannski ekki prófinu...ég meina, mér finnst ég vita rosa lítið um margt og ég þarf að vita ALLT. Það verður ritgerðarspurning og við fáum ekkert að vita hvað það getur verið svo maður þarf að vita rosa mikið um allt...þannig að ég er í djúpum....
ohhh...ég held að taugarnar mínar þoli ekki svona próf stand...vil bara ljúka þessu svo maður geti andað í smá stund!
Alltaf að sjá Jóel í skólanum....svona útundan mér...virðist vera svolítill einfari!
Eins og ég sagði Lilja...held að hann sé svolítið þín týpa!
Jæja hætta núna...bæjó og njótið þess að vera ekki í prófum!!!!



4 Comments:
At 8:23 e.h.,
liljaarn said…
Hey ertu ad gefa i skyn ad eg ladist bara ad einhverjum lonerum???! Hvurslags eiginlega... :) En ef hann er min typa hvernig stendur tha a thvi ad ther finnst hann saetur?! Thu veist ad thad hefur bara gerst einu sinni a okkar vinkonu aevi ad okkur finnist sami gaurinn saetur :) Eins gott segi eg nu bara...hehe! Take a picture of him for me!! Send me yours and I'll send you mine...hehehe!
At 9:54 f.h.,
KSvava said…
Vonandi gekk þér vel í prófinu í gær, veit alveg að þér gekk vel :O) Hafðu það svo gott í buskanum sem þú ert að fara, vonandi finnurðu menningu þar og skemmtu þér vel.. ætti ekki að vera erfitt að mála þennan bæ rauðan hehe, have fun!
At 11:20 f.h.,
KSvava said…
Hæ skvís, til hamingju með afmælið... bara orðin stór stelpa í dag og búin að ná mér loksins. Njóttu dagsins dúllan mína, knús og kossar....
At 5:28 e.h.,
Helga said…
Hæ hæ til hamingju með daginn dúlla. eða eins og við segjum hér í noregi gratulere med dagen. hvernig líður þér svo að vera orðin árinu eldri ;)
Skrifa ummæli
<< Home