Hádí dúdí!
Been a long time!
Allt fínt svo sem að frétta héðan....skólinn gengur sinn vanagang, er að fara í próf næsta föstudag og svo eru bara tvær vikur í jólapróf...djíses kræst segi ég nú bara! Ég fór með Gulla í bíó um daginn...fórum á the gathering, og hún var bara alls ekki svo slæm....ég segi nú samt að ef einhver ætlar á þess mynd og vonast eftir hryllings mynd þá er þetta alls ekki svoleiðis mynd...hún er frekar spookie...alveg fín mynd! ;) Svo ætla ég á forgotten á morgun....engar áhyggjur Lilja, ég fékk ókeypis miða,
Takk Lilja mín fyrir spjallið...þú ert bestust eins og alltaf ;)
Hvernig er það...vita allir hvað þeir eru að gera? Ég meina, efist þið aldrei um það sem þið eruð að gera, er fólk kannski bara að gera það sem það dettur inn í...á maður kannski að gera eitthvað allt annað...hvernig veit maður hvort maður hefur áhuga á einhverju...það er kannski vitlaus spurning, en samt getur þetta vafist fyrir mér, hef ég virkilegan áhuga á einhverju eða er ég bara að þykjast því ég veit ekki um neitt annað sem gæti virkað eða er ég bara endanlega að missa vitið...það yrði svo sem ekkert nýtt....Stundum finnst mér eins og ég sé afar tilgangslaus mannvera, allavega mjög áhugalaus...eru ekki flestir með svona "plan B"? Ég bara spyr!
ohh nú er komið nóg að svona kjaftæði!
Ég er farin í bað og reyna að slökkva á heilanum í smá stund...ramjo ho rengje kjo... eða eitthvað svoleiðis



2 Comments:
At 10:46 f.h.,
KSvava said…
Ertu búin að fá einhver svör við lopapeysunum, það eru yfir hundrað manns búin að skoða auglýsinguna!
At 6:14 f.h.,
Inga Rannveig said…
ég held að við séum öll fljótandi í e-i óvissu, ég kom allavegana ekki inní heiminn með leiðbeiningum um notkun :)
Skrifa ummæli
<< Home