Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, september 30, 2003

Ég get ekki fyrir mitt litla líf verið að læra núna...ég er búin að liggja yfir lærdómnum í allan dag...og ekkert gerist...ég virðist bara ekki getað einbeitt mér..það fer bara allt í vitleysu! hvað á maður að gera í svona dilemmu? Ég veit ekki...sitja og horfa út í loftið...eða gera bara eins og ég er að gera núna, blogga og kvarta undan þessu...það er náttúrulega besta hugmyndin...mig langar bara að gera eitthvað hugsunarlaust í dag...fara í bíó eða eitthvað! Ég er einfalldlega ekki í stuði til að læra núna...en þá kemur vandinn...Ég VERÐ að læra. Ohh ég er alveg að farast hérna...kannski ég fari bara að fá mér að borða...fá mér smá orku og setjast svo aftur við þetta ljóta hljómfræði verkefni...já ég geri það bara...takk fyrir hjálpina adios ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home