Ég held að stundum þá hugsa ég of mikið! Ég hef aldrei skilið fólk sem á auðvelt með að ákveða sig...ég hef aldrei verið svoleiðis...ég á rosalega erfitt með að ákveða mig...ég er alltaf hrædd um að þegar ég loks ákveð mig þá sé það röng ákvörðun...og hvernig getur maður lifað lífinu þannig? Ég veit ekki...svo er maður að hugsa um ótrúlegustu hluti...það er svo margt sem manni langar að gera eða ætlar að gera en það er alltaf eitthvað sem segir manni...NEI...þetta áttu ekki að gera...en afhverju ekki? Maður er alltaf hræddur um að einhver dæmi mann eða eitthvað...ohh well...ég ætla að drífa mig í skólan...
Litli ruglhausinn kveður í bili!



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home