Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, mars 15, 2004

Helgin var fín...fór í sumarbústaðinn...það var mjög fínt...fór nú samt heim á laugardeginum...er að fara að syngja um næstu helgi...verð að passa röddina! Samt er ekkert búið að segja mér hvenær æfingar eru...ég meina...ég á að syngja aríu með fullt af blásurum næsta laugardag og ég veit ekki með hverjum ég á að syngja eða hvenær æfingar eru! Þetta er nú bara fáránlegt...ég ætla ekkert að syngja með einhverjum ef ég fæ enga æfingu á undan...ég er svo fúl...að vísu hringdi ein í mig á föstudaginn....ég var á selfossi...á leiðinni upp í bústað og þá er hringt og spurt "vissir þú ekki af æfingunni sem er núna eftir klukkutíma" Ég meina það, þetta er alltaf svona...ég fæ ekki að vita neitt....auðvitað fór ég ekki á þessa æfingu....það er ekki hægt að hringja með klukkutíma fyrirvara og ætlast til að maður geti bara stokkið! Gæti lamið svona fólk!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home