Þá er föstudagurinn runninn upp....ég er enn kvefuð en ég skellti mér nú bara samt í stigspróf...og mér gékk nú bara ágætlega...gott að það er búið, því þá get ég loks sungið af öllum lífs og sálar kröftum á sýningunni í kvöld....og munið að mæta!!!!!
Fór á Indókína með Lilju minni í gær og ég verð að segja að maturinn þar er bara geðveikur....átum á okkur gat og sátum svo bara í rólegheitum í meira en klukkutíma...alltaf gott að fara út að borða og vera ekki að flýta sér....
Próf í næstu viku...og svo búin....ohhh, það verður æðislegt...verð örugglega alveg ómöguleg að hafa allt í einu ekkert að gera...en það verður gott að fá smá frí og gera ekkert!
Fjölskyldan er búin að kaupa hest...þannig að nú ekkert aftur snúið með hestasportið...það er nú líka bara gaman...ótrúlegt hvað það getur verið gaman að sitja á hesti og hossast út um allt.



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home