Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, maí 10, 2004

Helgin liðin...ég byrja nú ekki að vinna fyrr en eftir viku..en það þýðir ekki að ég geti slappað of mikið á...ég er að fara að syngja með kór frænda míns næsta sunnudag, þannig að það verða æfingar upp á hvern einasta dag...svona næstum því...ég ætla sko að sitja heima á miðvikudagskvöldið....EUROVISION...sko forkeppnin!

Svo er að koma að þessu....Eurovision....næsta laugardag ætla ég að sitja heima með pizzu og kók og horfa stolt á Jónsa okkar syngja sig inn í hjörtu Evrópubúa!

Helgin var voða fín...Hestbak, harðsperrur, leti og bíó! Getur varla verið betri

Það er búið að biðja mig um að syngja í tveimur brúðkaupum í sumar...alltaf gaman að vera vinsæll! Svo fer ég í eitt brúðkaup sem ég fæ að bara bara gestur...þannig að það eru þrjú brúðkaup í sumar....það eru bara allir að gifta sig í sumar...svo veit ég af einu brúkaupi í viðbót....sem ég er að vísu ekki boðin í.....en það er svo sem ágætt...ég er ekki viss um að ég mundi höndla eitt brúðkaupið í viðbót!

Jæja...ég ætla að næra mig núna og liggja svo í heitu baði og láta mér líða vel

See ya later

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home