Mánudagur til mæðu og þreytu....alltaf er maður nú þreyttur á mánudegi....ég held að það sé bara sálrænt!
Helgin var fín...söng í brúðkaupi í Keflavík á laugardag og gékk það bara mjög vel...þekki ekki brúðhjónin en þau voru alveg rosalega myndarleg...flott brúðkaup í alla staði...kjóllinn hjá brúðinni var alveg guðdómlegur! Það er svo gaman að syngja í brúðkaupum...allir eru svo glaðir og spenntir og það geislar af brúðhjónunum...ekkert getur klikkað...Presturinn var að vísu ekkert skemmtilegur...ég heyrði ekki helminginn af því sem hann sagði og ekki var það merkilegt það sem ég heyrði...ég mundi miklu frekar vilja hafa brúðkaupið persónulegra!
Sunnudagurinn fór í barna afmæli...Hún Enea litla frænka var 4ja ára...það voru alveg fullt af krökkum sem tóku alla orkuna úr manni...boðið var upp á súpu og brauð fyrir fullorðna og pulsur og kökur fyrir börnin (við fengum nú líka köku) en ég sat bara yfir hvítlauksbrauðinu og hreyfði mig ekki þaðan hehehe..
Svo eftir afmælið gerði ég heiðarlega tilraun til þess að kíkja niður í bæ...ætlaði að hitta Lilju og systir hennar þar...en eftir nokkra hringi, leitandi að bílastæði var ég orðin svo pirruð að ég sagði bara skítt með það og keyrði beinustu leið til Hveragerðis! alveg ótrúlegt....maður lenti bara í sjálfheldu ef maður reyndi að fá bílastæði...og þeir sem voru svo heppnir að koma snemma gátu bara gleymt því að komast með bílana heim aftur!
En...Nú er mánudagur, ný vika....þær koma alveg endalaust...þessar vikur enda aldrei...kemur alltaf ný vika að einni lokinni! Hlakka til að komast í frí...keyra um og gera nákvæmlega það sem manni dettur í hug...það verður geggjað að komast í frí!
Ég segi bara góða vinnuviku og hafið það sem allra, allra best ;)



5 Comments:
At 1:42 e.h.,
KSvava said…
Til hamingju með sönginn í brúðkaupinu, ég er alveg sammála þér með bílastæðin og fríið, langar svo í frí en það er ekkert svoleiðis fyrir mig fyrr en í september og þá bara ein vika :O( Oh well, fæ kannski sumarfrí næsta sumar en ætla samt að fara til Siglufjarðar og jafnvel Höfn í Hornafirði í sumar enn sem komið er!
At 2:19 e.h.,
liljaarn said…
Verður gaman að rúnta um landið og reyna við útlendingana á tjaldsvæðunum... :)
At 3:08 e.h.,
Heiða said…
Þokkalega ;) Get ekki beðið
At 8:44 e.h.,
Inga Rannveig said…
Til lukku með brúðkaupið...það er alltaf gaman að landa djobbi hjá einhverjum útí bæ...þá er maður orðin pínku frægur svei mér þá.....bráðum get ég farið að segja hluti eins og : "já ég þekkti hana Heiðu nú í gamla daga, áður en hún varð ofurselebretí"
Svo kemuru auðvitað alltaf í séð og heyrt og kannski verður e-r uppskrift eftir þig í gestgjafanum og það verður ekki hægt að kveikja á tívíinu án þess að þú sért þar...kannski að ég ætti að fara að grafa upp dóterí sem maður hefur nappað frá þér í gegnum tíðina og selja á íbei...jájájá
your going pleisis!! ekki láta neinn segja þér eitthvað annað!!
At 9:35 f.h.,
KSvava said…
skvísan mín, ég hef ekki fengið neitt email frá þér...hvert sendirðu það? Emailið mitt er 6923625@internet.is
Skrifa ummæli
<< Home