Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, júlí 19, 2004

Þá er maður komin heim frá Vestmannaeyjum. Ferðin gékk bara furðu vel, var líka með herbergi þannig að ég svaf bara báðar leiðir...það var mjög fínt og ætla að gera það aftur um versló. Ég kíkti aðeins á dalinn....hann er að taka á sig fína mynd...öll tjöldin að rísa og fint!

Brúðkaupið gékk líka vel, dagskráin var kannski aðeins of löng en loks einhverntíman eftir miðnætti þegar við gátum loks staðið upp þá var mikið dansað og tjúttað, fór ekki að sofa fyrr en um hálf sex um morguninn...alveg ótrúlegt því ég er vön að vera svo þreytt og farin að sofa um tvö leytið...en nei...ég var bara í rosa fjöri! Svo náttúrulega lenti maður í smá ævintýri (ekki meira um það hér)

Svo var maður vakin upp klukkan níu á sunnudagsmorgninum og dregin í skoðunarferðir um eyjuna...ég náttúrulega dauð úr þreytu...en það var nú samt mjög gaman að keyra um hraunið og svoleiðis.....þurfti svo að skúra upp á bæjó þegar ég kom heim um kvöldið þannig að ég var mjög fegin þegar ég fékk loks að leggjast upp í rúm og fara að sofa....ömurlegt að þurfa svo að vakna klukkan sjö í morgun...ekki alveg það sem mig langaði að gera.

En nú ætla ég að fara að vinna! Get ekki beðið eftir Versló...það verður æðislegt fjör ;)


Love ya all
Heiða

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home