Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, júlí 09, 2004

Jæja, þá er enn einn föstudagurinn genginn í garð. Ég er að fara í brúkaup á morgun og ég á að syngja í kirkjunni. ég er nú samt alveg agaleg...ég á eftir að kaupa gjöf og er að vinna til sex...djí...þetta verður eitthvað skrautlegt. En eftir þetta brúðkaup þá er söngurinn búinn þetta sumarið. ég er að undirbúa mig fyrir Vestmannaeyja ferð, þarf að fara þangað í brúkaup 17 júlí og svo ætla ég á þjóðhátíð, það þýðir fjórar ferðir í Herjólfi. Það er kannski bara best að byrja að æla strax! Ég ætla nú samt að fá mér koju og reyna að sofa þessar ferðir....

Ég fór á myndlista sýningu hjá systir hennar ömmu í gær. Dætur hennar héldu þessa sýningu í tilefni af brúðkaupsafmæli hennar. Þau hjónin eru búin að vera gift í sextíu ár...það er sko ekki algengt nú til dags. Þau komu meira að segja í fréttunum og hún sagðist bara vera enn skotin í honum, ekkert smá sætt! Manneskjan er búin að vera að mála allt sitt líf, alveg rosalega flottar myndir og þetta var fyrsta sýningin hennar.

En ekki meira í bili
Góða helgi allir saman!!!

1 Comments:

  • At 1:41 e.h., Blogger Inga Rannveig said…

    ég sá þetta í tvinu...rosalegt að þetta skuli vera skylt þér...geðveikar myndir...svaka talent...svona er ísland lítið :)

     

Skrifa ummæli

<< Home