Jæja! loks skrifar maður eitthvað hér...
Blogg letin alveg að drepa mann!
En ég er komin heim úr þessari æðislegu hringferð....það var nú alveg geggjað, set inn myndir um leið og ég nenni...það er svolítið mikið að gera hjá mér! Nú er ég byrjuð að vinna á þremur stöðum þannig að ég hef varla tíma til að sofa...en þetta kemur allt með kalda vatninu!
Ég ætla líka að setja inn ferðasöguna...svona þegar ég hef aðeins meiri tíma!
Nú er fyrsta helgin í júlí að renna upp...og viti menn...ég er ekki að fara neitt...það verður nú samt eitthvað stelpu djamm...með mágkonunni og fleirum...það verður örugglega fjör.
Alveg týpískt...Stóri bróðir minn er svona maður að hann ákveður að gera eitthvað og hann gerir það bara...eins og hann segir "nú ætla ég að djögla" eða "nú er ég hættur að vera feiminn" eða "nú ætla ég að skíða með alveg rosa flottum stíl" og svo gerir hann það bara...hann tók þátt í siglingarkeppni í gær og hann hefur nota bene aldrei stigið á svoleiðis bát og viti menn...hann bara vann keppnina...alveg ótrúlegt!
En annars, til hamingju með þetta Rósi bró!
Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað að viti
Góða helgi allir saman og ekki fara ykkur að voða í útilegunum!!



1 Comments:
At 1:06 e.h.,
liljaarn said…
Skemmtu þér vel á girls nite out :)
Skrifa ummæli
<< Home