Ný vika enn á ný!
Helgin var fín...ég og Valdi bróðir minn skelltum okkur á gay pride...bara rosa skemmtilegt...leið samt svolítið eins og ég væri í fjölbraut þar sem ég var umkringd af sunnlendingum...maður sér margt af þessu fólki kannski einu sinni á ári og svo sér maður alla á sama stað...ég meina 40 þús. manns og sunnlendingarnir safnast allir saman á sama punktinum...bara fyndið!
Eftir allt húllumhæið í miðbænum þá skelltum við okkur í bíó með Lilju. Sáum The Village...verð að segja að þetta er snilldar mynd...ég veit ekki um aðra en ég segji að þessi maður er snillingur...það voru margir eflaust drullu fúlir og fannst þessi mynd leiðinleg en ekki ég...ég er ýkt að fíla þennan mann.
Nú er ég búin að panta mér seríu tvö af Roswell...jeiiiii!



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home