Lífið er!

Eða hvað!!!!

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Ég held að maður hugsi of mikið!

Ég get endalaust velt hlutunum fyrir mér...á ég að gera þetta eða hitt eða er þetta skynsamlegt eða á ég að bíða eftir þessu eða á ég á ég á ég!
Hausinn fer stundum í marga hringi og samt kemst ég aldrei að niðurstöðu!
Maður er alltaf að bíða eftir einhverju rosalegu, einhverju sem blows you off your feet, En það virðist aldrei koma. Á maður að sleppa þessum draumum og finna sér eitthvað traust og gott eða á maður að bíða eftir einhverju sem kannski kemur aldrei. ég veit ekki, svei mér þá. Það er alltaf verið að segja mér að ég lifi í draumaheimi, ævintýraheimi sem er ekki til. En er eitthvað að því að vilja eitthvað sem fyllir mann af svo miklum krafti og hamingju að maður getur ekki annað en grenjað af hamingju? Er eitthvað að því að vilja vera eins hamingjusamur og maður mögulega getur, Kannski er ég með óraunhæfar kröfur...en hvar á maður að slá af? Hvað á maður að sleppa. Eru allir að sætta sig við minna en fólk vill eða eru virkilega einhverjir sem fá að lifa í ævintýraheimi. Ef svo er þá segi ég bara, afhverju ekki ég? Hlutirnir geta verið svo flóknir að maður veit ekki í hvorn fótinn maður á að stíga í. Maður verður nú líka að gefa hlutunum séns...aldrei að vita að eitthvað sem maður hélt að myndi ekki verða endi á því að verða draumaheimur. Svo er manni sagt að fylgja hjartanu, en ég er ekki viss um að ég treysti hjartanu...eða kannski veit ég bara ekki hvað hjartað er að segja...ég skil ekki svona hjartamál...kannski er það bara hjartað og höfuðið sem er að berjast og ég veit ekki lengur hvort er að tala og hverju ég á að fylgja...kannski held ég að ég sé að fylgja hjartanu en þá var það höfuðið allan tíman...og kannski er bara hvorugt að tala og ég sé að fylgja einhverju allt öðru! Djí...svona er að vera ég..hugsa bara í hringi og veit svo endanum ekki hvað í ósköpunum ég var að hugsa um til að byrja með

ohhh lífið getur verið alltof erfitt og alltof flókið!

Jæja ég ætla að engjast í friði í mínum hugsunum

have a nice day og hugsið ekki of mikið...it only leads to truble and seat w...
nei kannski ekki

bæjó í bili

2 Comments:

  • At 3:31 e.h., Blogger Inga Rannveig said…

    jú það er vont að huxa of mikið...en auðvitað eiga allir skilið að fá þessa flugelda og fá að springa úr hamingju...bara svo lengi sem fólk fattar að það er ekki eitthvað sem er í gangi allan sólahringinn...nú er ég búin að vera í smátíma með mínum manni...og það eru meiri flugeldar og oftar hjá okkur eftir því sem líður á...en oft er þetta líka bara ósköp hversdagslegt þar sem verið er að pæla í peningum og heilhveitibrauði... það er alltaf puð að fá hamingjustundir...en puðið er þess virði...láttu þig dreyma endalaust...bara ekki gleyma að setja annan fótinn fram fyrir hinn og vera raunsæ stundum :)

     
  • At 10:02 f.h., Blogger liljaarn said…

    Kannski er ég sísta manneskjan til að ráðleggja í svona málum-en ég held að maður eigi aldrei að sætta sig við the second best...hver segir að flugeldarnir birtist ekki einn daginn? Hlutirnir ganga kannski ekki upp eins og í bíómyndunum en maður á aldrei að sleppa taki af trúnni um að eitthvað virkilega gott og satt bíði manns einhversstaðar. Við lifum bara einu sinni-afhverju að sólunda þessum stutta tíma í að leita uppi óhamingju?

     

Skrifa ummæli

<< Home