Jæja þá er eitt námskeiðið búið, grunnupptökutækni heitir það...við fengum að taka upp tónlistarfólk og klippa það saman og gera flotta upptöku...það var bara gaman að sjá hvernig svona upptöku session virkar. Tónleikarnir eru svo á morgun...ég náttúrulega komin með eitlabólgu og svona skemmtilegt...vona bara að ég geti sungið fyrir því!
Fór með Valda og ömmu í bingó í gær...við komum heim með fullt af laufabrauði, nokkrar kippur af malti, appelsíni og pepsí, körfu með sjávarréttum og paté, stóra körfu fulla af kexi, nammi og einhverju öðru, næstum allt astrid lingren safnið....vantaði samt ronju ræningjardóttir (buhu).... Alveg ótrúlegt....
Ef þið viljið koma á tónleikana þá eru þeir á morgun 23.nóv í listaháskólanum, sölvhólsgötu klukkan 18.00
Jæja...ég ætla aðeins að leggja mig...er með einhvern leiðinda magaverk!
Have a nice day!!!!!



1 Comments:
At 6:34 e.h.,
KSvava said…
Ohhh hvað ég vildi að ég gæti komið, er bara að vinna núna og alveg til átta :O( En gangi þér vel og vonandi angrar hálsinn þig ekki of mikið :O)
Skrifa ummæli
<< Home