Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, desember 02, 2004

Jæja...þá er þetta alveg að verða búið...bara næsta vika og svo er ég komin í jólafrí...það verður svo ljúft að slappa svolítið af...vildi bara að ég ætti svolítinn pening svo ég gæti skellt mér til útlanda...en það gerist víst ekki. Er að fara á jólahlaðborð með Hveragerðisbæ á morgun, svo ætla ég að syngja með kór Hannesar frænda á sunnudaginn...alltaf nóg að gera.

hvernig væri svo að kíkja á lopapeysurnar og gefa góða og hlýja jólagjöf!!!!

jæja...ætli ég verði ekki að drífa mig í skólann, þó svo að ég nenni ekki að keyra í bæinn...það verður alveg yndislegt að komast í bæinn eftir áramót og þurfa ekki að vera alltaf að keyra á milli, þó svo að það sé nú voða gott að vera á hótel mömmu...fá alltaf góðan mat á kvöldin og svoleiðis!

Já og svo er ég búin að vera rosa dugleg, er næstum búin að kaupa allar jólagjafirnar (Lilja, pakkinn þinn er farinn af stað ;)) á bara eftir að skrifa jólakort og þá er ég bara að verða til fyrir jólin....hef aldrei verið svona snemma í þessu!

En gleðilega aðventu og njótið komandi helgar...

By the way....Ég og Gulli ætlum að tjútta í Hveragerði um áramótin...hvernig væri að fleiri kæmu með ;)

luv ya all

1 Comments:

  • At 9:59 e.h., Blogger liljaarn said…

    Mer finnst ad thid aettud frekar ad koma og tjutta i Montreal...! Hehe! Hlakka svaka mikid til ad fa pakka-thvi midur fer thinn ekki af stad fyrr en eftir helgi thar sem eg hef ENGAN tima haft til ad komast i jolagjafaleidangur... :o( En hann kemur tha alltjent eftir jol...vonandi! (hef ekki mikla tru a kanadisku postthjonustunni!)

     

Skrifa ummæli

<< Home