Allt byrjað aftur
Stundum er eins og maður hafi aldrei farið út...eins og afslöppunin sem maður fékk sé bara þurrkuð út og hafi aldrei gerst....Lífið er byrjað á ný...skólinn, fjölskyldan og allt sem ég skildi eftir þegar ég fór út...verð að segja að mér tókst rosa vel að gleyma öllu heima....sakna náttúrulega alltaf íslands...hér á ég heima....en stressið sem ég skildi eftir er komið aftur, stundum er eins og ég muni einfalldlega ekki meika það!
Lenti í smá ævintýri þarna úti sem stóð í tvo daga...það eru komin mörg ár síðan ég lenti í ævintýri síðast....Ég vil það aftur...fólk er alltaf að segja mér að ég lifi í drauma heimi...að ég hafi alltof miklar kröfur...en það er bara ekki rétt...það eina sem ég vil er það sem allir aðrir í kringum mig hafa...afhverju eru það of miklar kröfur þegar ég bið um það en bara eðlilegt þegar allir aðrir eru að upplifa það. Stundum finnst mér eins og fólk í kringum mig sé að segja að ég eigi að sætta mig við það fyrsta sem ég get fengið því þannig sé lífið....það er ekki heldur rétt..
Mig langar bara að hverfa núna...í svona smá stund...versta er að maður verður alltaf að koma til baka og þá......................................................
Ætli ég verði ekki að fara að læra...ekki það að ég viti nokkuð hvað ég er að gera, verð bara að þykjast vita voða mikið, eins og ég hef gert síðustu ár...það hefur svo sem gengið ágætlega, fékk fínar einkunnir....ég veit ekki hvernig þar sem ég hef ekki hugmynd hvað ég er að gera....einn daginn á eftir að komast upp um mig og hvað geri ég þá...........................................................................



1 Comments:
At 10:36 f.h.,
Inga Rannveig said…
já ég er eiginlega ekki alveg að meika það að mega ekki lengur liggja í leti með franskar og appelsínusafa og horfa á M eða vera í sólinni að lesa....förum bara aftur út....við vinnum bara í lotto eða eitthvað
Skrifa ummæli
<< Home