Ég meika ekki þennan dag
Ég bara orka þetta ekki...ég meina, allir eru pirraðir í dag, fólk hreytir ótrúlegustu hlutum framan í mig og svíkja mig og ég veit ekki hvað og hvað, langar rosalega til þess að öskra mjög hátt og berja svolítið frá mér, svo langar mig líka að setjast á gólfið og gráta og gráta...en það er víst ekki hægt að gera það, ekki þegar maður er að vinna....þarf að halda í mig svo tárin renni ekki niður...getur verið ofboðslega erfitt.
Langar bara að skríða inn í litla holu þar sem enginn finnur mig! Gleyma heiminum og öllum þeim skíthælum sem búa þar...úff þarf að anda aðeins...þessi dagur er bara ekki að virka.....ohhh hringir síminn.....jæja...þetta var ekki svo slæmt...er samt alveg hætt að vilja svara í símann...ekkert nema fólk sem reynir að bíta af mér hausinn.....Tveir tímar eftir og þá get ég stungið hausnum í sandinn. Rosalega getur verið erfitt að brotna ekki niður.
æoawetisgæ avhslgnypaev4uioæækæfjlhiopsdtiuopa
Bara smá útrás og lyklaborðinu
seeya



1 Comments:
At 9:49 e.h.,
Inga Rannveig said…
hugsaðu bara um sólina og sandinn....það er að styttast í paradísina :)
Skrifa ummæli
<< Home