Líður aðeins betur í dag
Aðeins betri dagur, búin að gera eina gloríu í dag...en enginn hefur reynt að bíta af mér hausinn ennþá...alltaf góð tilfinning.
Það eru samt alltaf sumir sem fara rosalega í taugarnar á mér...ég reyni bara að anda, hugsa um sand, hita og sjó (takk Inga mín) og slaka á.
Sumt fólk er nú bara fyndið, það kom maður hingað inn og sagðist vera örmagna af þreytu og hvort ég gæti ekki skutlað honum heim...uhhh...Ég ein á skrifstofunni segi auðvitað að ég kemst nú ekki neitt....þá biður maðurinn mig um að hringja í konuna sína til þess að segja henni að koma og sækja hann...uhhh...ókei. Svo situr maðurinn og kveinkar sér í sífellu...talar um elliglöp og hvað konan sé nú lengi á leiðinni...og hvað við unga fólkið hefðum það nú gott og ég veit ekki hvað og hvað. hehehe
Nú er konan of lengi á leiðinn þannig að hann er að reyna að nappa fólk hérna inni til að skutla sér, og tókst það...nú er hann farinn og greyið konan ekki komin enn...jæja, sumir eru bara fyndnir.



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home