Lífið er!

Eða hvað!!!!

föstudagur, október 28, 2005

ojj ojj ojjj....

Ógeðslegt veður....ég á að fara í masterklass á eftir...en það er alveg spurning hvort ég fari nokkuð í bæinn í þessu veðri...það er brjálað rok og snjókoma...maður sér varla næsta hús, hvað þá meira....og á maður svo að fara að keyra yfir heiðina...það er spáð um 22 metrum á sec í dag...ojj ojj ojj....Langar bara að sitja upp í rúmi...undir sænginni minni og glápa á vídeó eða eitthvað...eitthvað heilalaust allavega...og kannski háma í mig eitthvað góðgæti. Ekki slæmur svoleiðis dagur....en það verður að koma í ljós hvað gerist...hef til tólf til að ákveða mig.

Litli bróðir minn (sem er því miður orðinn stærri en ég) fór á halloween ball í gær...við skelltum honum í hvíta skyrtu og svartar buxur..svo átti hann þessa fínu dracula skykkju og svo máluðum við hann í framan eins og sannur Dracula...og vitiði hvað...hann vann verðlaun fyrir besta búninginn....æðislegt!

Svo er Halloween partý hjá skólanum mínum á laugardaginn...veit ekki hvort ég fer, þegar kemur að mér þá hverfur allt hugmyndaflug..alveg ótrúlegur fjandi það. :)

Annars er bara allt gott að frétta af mér...ekkert nýtt gerist svo sem..er bara í skólanum og hangi svo heima hjá mér....er að vísu komin í kór...bara svona rétt yfir jólin....fæ að syngja einsöng og dúett...það ætti að verða fjör.

Hafið það nú gott....ekki slasa ykkur á hálkunni og njótið lífsins...það gerir það víst enginn fyrir ykkur..........

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home