Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, október 11, 2005

Þetta er miklu betra lyklaborð

Núna er bara kuldi og snjór í Hveragerði...alveg ótrúlegt hvað veðrið breytist fljótt hérna.
Fór í skólann í dag....kíkti á netið rétt áður en ég fór (um 12 leytið) til að athuga hvort einhver væri veikur...nei enginn veikur...ég fer í skólann og þegar ég mæti þar þá stendur að kennarinn minn sé veikur...svona fólk....þurfti að bíða í alveg þrjá tíma eftir næsta tíma...það á að setja svona lagað beint á netið, alveg ótrúlegt.

Gulli benti mér á eina staðreynd...ég hef aldrei verið með strák sem er eldri en ég....hef alveg haft tækifæri til þess en hef samt alltaf verið með yngri...afhverju er það? Get ekki alveg áttað mig á því...kannski er ég bara með svo mikla complexa að ég treysti mér ekki til þess að setja mig í hendur eldri manna....en aftur á móti með yngri.....þá ættu þeir eflaust að búast við meiru af mér...eða hvað....er þetta kannski einhverskonar Peter Pan sindrom eins og hjá henni Ingu minni! Ég veit ekki...get hugsað þetta í marga hringi, veit ekki hvort ég komist að einhverri niðurstöðu....ég meina, nú er ég farin að horfa á 22 ára stráka....jafnvel 21(fallegur dökkhærður Grikki með flottar mjaðmahreyfingar) Er eitthvað að því...er það ekki bara allt í lagi? Eða er ég bara ógeðsleg....ég meina, nú eru konur að giftast strákum sem eru 10 árum yngri...hversu miklu skiptir þá 5 ár?

Ég veit ekki.............................

2 Comments:

  • At 7:55 e.h., Blogger liljaarn said…

    Ég mæli með að yngja örlítið upp ;o) þessir ungu eru ekki alveg jafn heimagrónir og staðnaðir og þessir "eldri og reyndari"...svo er það líka spurning um stamínu...if you get my drift ;o)

     
  • At 9:36 f.h., Blogger Inga Rannveig said…

    Ég hef farið alveg heilu ári upp....held ekki meira...en miklu meira niður...svo er kallinn minn líka yngri...ég held að yngri menn yngi mann bara upp...hafðekki áhyggjur af þessu...ekki fyrr en þetta er orðið eins og í Hollívúdd og þú ert áttræð en hann nítján :)

     

Skrifa ummæli

<< Home