Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, september 13, 2005

Það var verið að benda mér á að vera ekki svona helv*** down alltaf hreint hérna á blogginu...hvað get ég sagt...hef alltaf meira að segja þegar mér finnst allt ömurlegt...en ég skal reyna að vera hressari :)

Skrapp í bíó núna áðan, á strákana okkar...barasta fín mynd....Svolítið gróf...Íslendingar þurfa alltaf að fá útrás fyrir strípihneigð sína, En það er svo sem allt í lagi...bara nokkuð fyndin og skemmtileg mynd.

Fékk hina árlegu næturheimsókn frá einum af vinum mínum......alveg ótrúlegt að svona einu sinni á ári þá dreymir mig einn mjög góðan vin, og alltaf verðum við meira en vinir í draumnum. Alltaf sami vinurinn. Væri nú alveg til í að fá að dreyma einn dökkhærðan Grikkja...en því miður ræð ég ekki hvað mig dreymir...dem...

Jæja...ég ætla að fara að leggja mig....krosslegg fingurnar að mig dreymi eitthvað verulega spennandi þessa nóttina....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home