Helgin liðin og komin ný vika
Þetta var bara ágætis helgi...ég kíkti aðeins á íbúðina þeirra Siggu og Jóns...bara voða sæt íbúð og svo var kíkt á Snúlla....þar var auðvitað svaka fjör eins og venjulega, Hitakútur hitaði okkur öllum...þeir voru rosa skemmtilegir, ég endaði samt kvöldið með kúlu á hausnum og marbletti á hendinni og löppinni...sumir voru bara aðeins og drukknir.....sko ekki ég...ég er alltaf edrú, búin að komast að því að það er vel hægt að skemmta sér edrú :)
Maður er alltaf að læra að syngja og syngur alveg fullt af svona klassísku efni...en satt best að segja þá hefur mig alltaf langað að vera í hljómsveit...væri það ekki gaman? Hvað segir þú Gummi...eigum við að stofna hljómsveit ;) hehehehehehe
Well..ætli ég verði ekki að læra eitthvað...finnst eins og ég hafi bara verið í letikasti alla þessa önn...verð að fara að gera eitthvað...kannski ég borði fyrst...já líst betur á það :)



3 Comments:
At 10:02 e.h.,
Nafnlaus said…
já, hvernig væri það... En þú verður þá að syngja :) ... Ég kann ekkert svoleiðis
At 12:46 e.h.,
Heiða said…
Frábært...og ekkert mál..ég kann að syngja :)
At 6:43 f.h.,
Inga Rannveig said…
þú hefur orðið fyrir kítli...sjá bloggið mitt :O)
Skrifa ummæli
<< Home