Lífið er!

Eða hvað!!!!

fimmtudagur, desember 29, 2005

Jólin liðin, áramótin framundan

Ég er búin að hafa það bara voða gott um jólin, aðalega slappað af. Reyndar var ég svo óheppin á þorláksmessu að sjálfskiptingin í bílnum mínum gaf sig....þannig að nú er ég bara í bíla hugleiðingum, þarf að redda mér nýjum bíl áður en ég byrja aftur í skólanum, reyndar er ég með hugann við einn sérstakann, sjáum til hvað gerist :)

Hún Rakel vinkona (ragga spes) varð í 4 sæti í jólalagakeppni rásar tvö, samt ekki slæmt miðað við hversu margir sendu inn lög, til hamingju með það Rakel :)

Áramótin eru á næsta leyti, mikil hátíðarhöld þá, það verður byrjað á því að fara á Sölvakvöld á örkinni á föstudaginn og svo verður fagnað nýju ári á Snúlla þar sem Hitakútur mun trylla lýðinn :) Það verður ekki annað sagt en þar sem Hitakútur kemur saman, er einfalldlega rosa gaman....heheheh rímaði og allt saman...
Allir að mæta þangað

Ég segi bara Gleðileg jól og hitti ykkur öll á nýju ári....á Snúlla :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home