Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, janúar 24, 2006

Allt byrjað á ný!

byrjuð í skólanum og hin venjulegu áhyggjuefni búin að poppa upp eins og venjulega. Ég er búin að taka að mér aðeins meiri vinnu, verð að vinna alla miðvikudaga og sunnudaga og svo annanhvern laugardag, verð víst að gera eitthvað ef ég ætla að borga þennan fína bíl sem ég keypti mér.

Verð samt að segja að ég er komin með hreint og beint ógeð á skóla, mér finnst eins og þetta taki engan enda og svo endar maður með ekkert nema feita skuld á bakinu, ohh jæja, þýðir víst ekkert að væla um það.

Stundum held ég að ég sé alveg clueless, skil hvorki upp né niður.

Jæja, ég ætla að reyna að læra eitthvað smá áður en ég skelli mér í skólann

Adios

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home