Lífið er!

Eða hvað!!!!

mánudagur, febrúar 06, 2006

Helgin liðin

Það var alveg rosalegt á Snúlla á laugardaginn, það var svo troðið að ég hef varla séð annað eins, Hitakútsfélagar voru rosa góðir að vanda...ég hefði nú samt viljað getað dansað meira....reyndi nokkrum sinnum að standa upp og dansa...en vá...það var nú varla hægt, troðningurinn var svo mikill.....maður gat ekki einu sinni notið þess að glápa á.....well, fer nú ekki lengra með þá hugsun ;)

Eurovision!
Ég er alveg á báðum áttum með þetta dæmi...Ef Silvía Nótt fer út fyrir okkar hönd þá fær hún örugglega mikla athygli og með góðu sjói gæti hún jafnvel fengið einhver stig, en aftur á móti þá er hún svo föst í karakter að ég er rosa hrædd að hún muni móðga Evrópu eins og hún leggur sig og fólk mun ekki fatta að þetta sé ekki raunverulega hún......Pæliði bara í því hvernig Andy Kaufman var!!!!!!!!

MIG VANTAR FRÍ
Er að verða biluð.....vantar frí og það strax...tíminn líður svo hratt og ég held ekki í við hann, er orðin eftir á og finnst ég eiga eftir að gera svo margt og engan tíma til að gera það......vil bara komast í frí og gleyma öllu hérna heima í smá stund....þó það sé ekki nema í nokkra daga....ætla mér komast til Parísar eða þá kannski London! Hef samt engan til að fara með mér...ekki fer ég ein!

Well, ég ætla að drífa mig í skólann
ein rosa þreytt á þessu skóla lífi kveður að sinni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home