Löng helgi liðin og ekki mikið gert, ég fór í Keilu....ekkert sérlega góð í því! Svo datt leiksýningin niður því einn leikarinn þurfti að fara á spítala. Svo lá ég bara í leti alla helgina. Nú er stutt vika, ég verð nú bara að segja að henni gengur bara ekkert að líða....ohh well!
Það er nú svo sem ekkert að frétta af mér...en ég veit að ég er ekki svona "vakna klukkan sjö" manneskja, það ætti virkilega að banna þetta og setja í lög að allir mættu sofa til níu....ja...kannski yrði það erfitt fyrir fólk sem þarf að vinna 8 tíma á dag....en allavega, ekki meira um það.
Svo virðist sem það verði rosa stuð á Akureyri helgina 17. júní, ég auðvitað kemst ekki, en ég bið að heilsa þeim sem verða þar...vildi að ég kæmist með :)
Ég verð bara með fána og blöðru í Reykjavíkinni...og kannski candy flos....
Digitalið er loksins komið í Hveragerði, auðvitað er eitthvað vesen með það...en ég held að þetta bjargist.....bjargast...bjargist......segið þetta orð oft og þá missir það alla merkingu, gæti verið að tala eitthvað annað tungumál....vá...þyrfti kalt vatn framan í mig núna.....
1, 2 og bingó.........farin aftur að vinna!
Kveðja
Heiða



2 Comments:
At 1:58 e.h.,
Nafnlaus said…
Ég verð á Akureyri, það var geeeeðveikt síðast og verður geeeeðveikt líka núna ;) muahahaha
At 1:36 f.h.,
liljaarn said…
Ertu nokkuð alveg að missa það honey?! ;o)
Skrifa ummæli
<< Home