Finnland rúlar
Jæja, kannski kominn tími til að þeir unnu þetta, ég meina, þeir hafa aldrei verið í topp 5. og fengu síðast tólf stig 1977, orðið frekar langt síðan!
Kíkti svo til Siggu eftir eurovision, þar var nú bara rosa kósí, takk fyrir mig Sigga mín :)
Svo gékk eitthvað illa að reyna að fá fólk til að fara á Kidda, þannig að það endaði með því að ég og Gulli fórum bara ein.....það var alveg geggjað á Kidda Rót, Hitakútur var auðvitað í svaka formi og ég verða að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vel ;)
Takk fyrir mig strákar! Hvernig væri svo að fleiri af ykkur mundi gefa mér knús næst? mér finnst ég alveg eiga það skilið!!!!!
Svo held ég að það sé hrikalegur misskilningur í gangi hér í Hveragerði.....fólk heldur að ég og Gulli séum eitthvað svaka par....well....bara til að kom í veg fyrir frekari misskilning þá erum við Gulli ekki saman, það er greinilega erfitt að eiga vini af hinu kyninu, fólk þarf alltaf að halda að það sé eitthvað meira í gangi! Well, it's not!
En ég er að pæla í því að njóta dagsins....langar að gera eitthvað skemmtilegt í dag....ekki oft sem ég á frí á sunnudegi :)
Jæja...have fun í dag,
kossar og knús frá mér :)



1 Comments:
At 12:10 e.h.,
Nafnlaus said…
Knúsið áttu svo sannarlega skilið.
Skrifa ummæli
<< Home