Jæja, ég er komin heim frá köben
Fríið bara búið...ekkert skemmtilegt...er búin að vera að vinna alla helgina og svo byrja ég á selfossi á morgun....djís, langar rosalega að fara til sólarlanda í þrjár vikur....liggja bara í leti og gera ekki neitt, Það var rosa gaman í köben en maður verður svo rosalega þreyttur eftir svona borgarferðir, síðasta daginn var ég hætt að finna fyrir löppunum á mér.......en við sáum margt, fórum til dæmis til Malmö...og þrátt fyrir yfirlýsingar frá mér þá keyrði ég frá miðborg malmö til miðborgar kaupmannahafnar....fannst ég vera rosa dugleg!
Annars er alltaf verið að bögga mann með skólann, þarf að fara að velja fyrir næstu önn, en það er búið að breyta kennsluskránni þannig að ég á allt í einu miklu meira eftir en ég hélt....verð að reyna að tala við konu ræksnið um það og svo vill þetta fólk leyfa mér að fá allt sem þeir í söngdeildinni fá og vilja að ég láti sönginn og allt það ganga fyrir kennslunni (tónmennta kennslunni) þó að ég sé á kennslubraut en þau vilja samt ekki leyfa mér að útskrifast af söngbrautinni....alveg hætt að skilja nokkurn skapaðan hlut þegar kemur að þessum blessaða skóla.
Jæja....ég ætla að pirra mig á þessu í friði....
Hafið það gott í dag



3 Comments:
At 6:10 e.h.,
Nafnlaus said…
wtf??
At 2:09 e.h.,
Heiða said…
uhhh...vabeha
At 2:49 e.h.,
Nafnlaus said…
Hitakútur á Cafe Kidda Rót laugardagskvöldið 20. mai.... sjáumst þar.
Bara að auglýsa það:)
Skrifa ummæli
<< Home