Lífið er!

Eða hvað!!!!

þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Svolítið langt síðan síðast

...........samt ekki mér að kenna...ok, kannski smá mér að kenna, en þegar maður er búinn að skrifa alveg rosa langt blogg og allt hverfur þá fer maður einfaldlega í fílu og nennir ekki að skrifa meira....bara bögg...

En annars er allt að komast í réttar skorður, ég er búin að ákveða lokaverkefni, ætla að vera með söngleikja námskeið í félagsmiðstöðinni í Hveragerði fyrir elsta stigið...það ætti að verða fjör :) og svo er það BA ritgerðin...er ekki alveg viss hvað ég ætla að skrifa um en ég er alveg viss um að það tengist söngleikjum á einhvern hátt....jeiiii...loksins fæ ég útrás fyrir söngleikja þörfina hjá mér!

Hei, svo fékk ég gigg sem dómari í söngkeppni í Grunnskólanum í Hveró...bara gaman að því...get þá líka séð hverskonar talentar eru í bænum :)

Tónleikarnir mínir verða 30.nóv, ég er auðvitað langt frá því að vera tilbúin í það, en það reddast örugglega einhvernvegin....ég meina, þessi önn bara hreinleiga flaug framhjá mér, hún er bara að verða búin og mér finnst ég ekki vera byrjuð...djíses kræst segi ég nú bara.

En nú ætla ég að drífa mig að pósta þetta áður en þetta dettur allt út hjá mér aftur, þá mundi ég ekki vera hamingjusöm manneskja....

Jæja, have fun og njótið vetrarins á meðan hann er :)

5 Comments:

  • At 3:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jæja góða mín,

    hvaða tónleikar...hvað?...verð ég nú bara að segja! Veit bara ekki um hvað þú ert að tala!!!

    Annars gangi þér vel með söngleikjadæmið, alveg bíð ég mig ekki fram í neitt svona. Fór á sviðið einu sinni og geri það ALDREI aftur! :o/

     
  • At 4:28 e.h., Blogger liljaarn said…

    Loksins, loksins blogg! Annars hef ég tekið eftir því að um þetta leyti árs þá hverfa stúdentar oft af yfirborði bloggheimsins... það skildi þó aldrei vera bókalestur og ritgerðaskrif sem valda þessu?!? Ánægð að heyra að þú færð loksins smá outlet fyrir söngleikina þína :o) Verður örugglega mega flott hjá þér! Knús!

     
  • At 12:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já veturinn líður svo hratt að áður en maður veit af er jólafríið búið áður en maður byrjaði að njóta þess :)
    hehe það verður spennandi fyrir þig að sjá hversu hæfileikaríkir krakkarnir í Hveragerði eru að syngja, mig minnir að ég hafi alla vegna þurft að syngja í tveimur helgileikjum í den tid svo að þau eru kannski með einhverja æfingu ;)
    Hefur alla mína samúð í verkefna og ritgerðarvinnu... en ég efast ekki um að þér gangi rosalega vel á tónleikunum :)
    Rannveig

     
  • At 2:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég verð nú bara að segja þér enn og aftur hvað ég er ánægð með lokaverkefnið þitt!! Þú verður að lofa me´r að ég fái að sjá uppfærsluna... þetta verður örugglega geggjað gama ;) hlakka líka til tónleikanna þinna.. einhvernveginn þá er maður alltaf tilbúinn þegar að þeim kemur.. smá stressandi vikan fyrir en svo er það bara allt í lagi ;) Góða skemmtun kjútí.. sí jú in skúl..

     
  • At 11:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Heyrðu váááá það er sko styttra síðan að ég bloggaði en þú!!! hvað er að gerast hérna Heiða mín?

     

Skrifa ummæli

<< Home